Our greatest glory is not in never falling, but in rising everytime we fall
Myndasíður
22.03.2007 10:55:04 / dagnyerla

Komin í pásu....

 

æ hef ekkert skemmtilegt að segja.....

sjáumst


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.03.2007 10:42:17 / dagnyerla

Í vinnunni

 

Ég virðist alltaf skrifa þegar ég er í vinnunni, ágætt að hafa pistil á tveggja vikna fresti!!!

Nei Valla mín ég hélt sko EKKI með Guðjohnsen og félögum á þriðjudaginn og þetta voru ansi erfiðar 15 mínútur. Er samt alveg viss um að ef hann hefði byrjað inn á þá hefði hann klárað Liverpool!! En sjitt hvað ég var sátt við mitt lið þennan dag. Svo drógumst við á móti PSV þannig að það verður hörkuleikur:)

Nóg um fótbolta

Dagurinn í gær var ansi skemmtilegur. Ég fékk mömmu og Arnar í heimsókn. Tilgangurinn með þessari Reykjavíkurferð var að ná í nýjasta fjölskyldumeðliminn, hana Tíbrá. Pabbi keyrði í bæinn á miðvikudaginn og komu Arnar og mamma fljúgandi í gær og svo keyra þau aftur tilbaka í dag! En gærdagurinn byrjaði heldur brösulega. Ég steyptist niður tröppurnar heima hjá mér og þetta var ágæts fall. Var voða mikil pæja í síðum bol, leggings og mokkasíunum mínum og vildi ekki svo betur til að ég var að tala e-ð voða mikið við Egil og hryn svo niður. Fékk smá sár á hnéð og ristina og var pínu aum í lófanum en annars er ég í lagi;) Þetta var eiginlega bara vandræðanlegt.... :$ Egill sagði að hann reyndi að grípa mig en var ekki nógu snöggur hehe :)

En við mæðginin skelltum okkur í Kringluna þar sem drengurinn var sko dressaður upp, keypti sér hvítar gallabuxur og hvíta og svarta skó við og var svaka flottur;) Fórum svo í Jóa útherja þar sem fjárfest var í Liverpool bolta. Svo kíktum við á Tíbrá litlu sem er alveg yndisleg og það verður ekkert smá gaman að koma heim um páskana að hitta hana;) Svo var tekin algjör skyndiákvörðun og við keyptum okkur miða á X-Factor sem var bara mjög gaman. Við smelltum okkur hjá GÍS liðinu, Valdísi og co, og hvöttum Guðný Pálu og Írisi áfram. Þær fengu séns frá Einari Bárða sem betur fer því þær eru langbestu söngkonurnar í keppninni!! EKKI GLEYMA AÐ KJÓSA ÞÆR NÆST

en þessi pistill er orðinn ansi langur

Egill á leiðinni austur á eftir, Huginn að fara að keppa í dag og svo fer kallinn í æfingakennslu á Seyðisfirði í 3 vikur, búhúú. Neinei, það verður fínt að vera ein í kotinu. Við Lára vinkona erum búnar að ákveða að hafa þriðjudags-deit og svo er Urður að koma á miðvikudaginn þannig að ég verð ekkert einmana.

jæja, verð að fara að gera eitthvað í vinnunni!!!

sjáumst þegar við sjáumst (see'ya when I see'ya)

(spurning dagsins: hvern er ég að vitna í??)

DEÓ

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.02.2007 10:20:34 / dagnyerla

Beilerinn....jahhá

 

Enn ein vinnuhelgin að vera búin og sem betur fer. Ég næ alltaf að gera EKKI NEITT og hundleiðast og ég veit ekki hvað. NENNTI BARA EKKI út í gærkvöldi, hékk heima í lopapeysunni, í íþróttabuxum með nammi OG ís að horfa á mynd á Rúv. Gerist það betra eða? Verð að fara að taka mig á. Næsta helgi verður samt mun betri, nóg að gera þá. Helgi Snær er að koma á fimmtudaginn því hann er að fara að keppa á Samfés á laugardaginn. Svo er íþróttadagur í Reykjanesbæ á föstudaginn, ÍAK að keppa við ÍKÍ, vonandi verður það eins gaman og síðast, fyrir utan það að við rústum þeim kannski í þetta skiptið. Fór heldur betur í frægðarför á Laugarvatn og keppti í blindrabolta. Ætla nú ekki að rifja þá sögu upp en við skulum bara orða það þannig að það er ekki voðalega gott að vera heyrnalaus á einu og sjá ekki neitt....;)

Svo er nýr fjölskyldumeðlimur að bætast á Garðarsveginn. Urður er ólétt.....DJÓKDJÓK. Erum að fá litla sæta tík og ég mun líklega koma með hana um páskana. Hún er svört með gráar fætur og grá á bringunni. Það er ekki búið að finna nafn á prinsessuna en þið megið alveg koma með hugmyndir í kommentin ef þið hafið einhverjar.

En jæja, 3 klst og 40 mínútur eftir af vinnunni, verð að finna mér e-ð að gera.

Hafið það gott í dag, örugglega margir með þungan haus, sérstaklega meðlimirnir í KKK ;)

kv, DEÓ


» 8 hafa sagt sína skoðun

18.02.2007 12:23:53 / dagnyerla

Konudagurinn

 

Jahhá!! Vitiði hvað ég vaknaði við. Birkir Pálsson var mættur klukkan hálf 12 fyrir framan hurðina hjá mér með blómvönd í hönd. Nei, frændi var nú ekki að gefa mér blóm heldur var hann með sendingu frá Agli :)    Varð ekkert smá hissa, svo gaman að fá blóm;) takk ástin mín (og takk líka Birkir)

Eiríkur Hauksson fulltrúi Íslands í Eurovision og mér bara líst ágætlega á það, ég vona bara að hann sleppi síða leðurjakkanum, það var eiginlega svoldið Lordi-legt. Uppáhaldslagið mitt var samt Húsin hafa augu:)

HELGI SNÆR er samt maður helgarinnar!!! Hann lenti í 3.sæti í SamAust og er að fara að koma til mín eftir 2 vikur að keppa í Samfés. Er ekkert smá sátt við strákinn:) Hlakka geðveikt til að fá þig.

jæja, ætla að fara að taka til og vera dugleg.

Konur til hamingju með daginn, vona að þið njótið hans sem best

kveð að sinni

DEÓ

ps. Bolludagur á morgun, namminamm


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.02.2007 19:06:07 / dagnyerla

KOMA SVO!!!

 

Fullt að gerast í kvöld.....

Eurovison...spennandi hver kemst áfram en ég er sko miklu spenntari fyrir SamAust sem er haldin á Hornafirði í kvöld og HELGI SNÆR er að fara að syngja IMAGINE eftir John Lennon

Gangi þér vel elsku Helgi minn og ég vona að þú komist áfram og komir til mín í mars:)

kiss og knús frá stóru, stóru systir

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.02.2007 10:20:43 / dagnyerla

10:14

 

Virðist ekkert ætla að ná þessu kvefi úr mér, er búin að tvöfalda pappírsnotkun á heimilinu og skil ekkert í því hvar allt þetta h*r kemur frá.

Hef sjaldan átt jafn rólega helgi...úff.

Á föstudaginn var okkur boðið í mat til Önnu Dóru og Magga, Egill var ekkert SMÁ SÁTTUR með það, brosti HRINGINN þegar Gummi hringdi. Horfðum á X-factor þar sem Guðný Pála fór eins hátt og hægt var....sjitt hvað þetta var flott hjá þeim. Fannst þær bestar þetta kvöld. Eftir það þá fór Egill með Freysa og Haffa í keilu, þeim fannst eitthvað hommalegt að fara tveir en ég leigði mér bara spólu, The Sentinel, bara þrusufín. Ekki nóg með það að ég var EIN að horfa á vídjó á föstudagskvöldi þá gerði ég það LÍKA á laugardagskvöldið... leigði Prime með Uma Thurman og "Jake" í One Tree Hill, svaka sætur:)

Þannig að næstu helgi VERÐUM við að halda júlluklúbb eða eitthvað, get ekki slappað svona mikið af aftur....það er ægilegt.

Látum í lokin eina mynd af Brian Greenberg og Uma Thurman

Mig langar bara að horfa á þessa mynd aftur þegar ég kem heim

jæja, kveð úr Þrekhúsinu, endilega kíkið í heimsókn


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.02.2007 18:50:03 / dagnyerla

Komin suður

Já, þá er maður kominn í borgina aftur. Alveg hreint alveg ágætt, gaman að "krúsa" Reykjanesbrautina aftur með skvísunum mínum en gleðifregnirnar eru þó þær að ég þarf bara að keyra 2svar í viku til Keflavíkur!!! Þvílíkt næs

Er samt búin að ná mér í leiðinlega flensu sem lýsir sér þannig að ég er að snýta mér allan daginn....óþolandi. Er þó ekkert að kvarta og synti 1 km, takk fyrir pent, í sundi í dag. Það var tímataka og góðu fréttirnar eru þær að ég komst inn á skala (þ.e féll ekki) en slæmu fréttirnar þær að ég fékk samt alls ekki góða einkun. Þannig að ef þið náið ekki í mig þá er ég líklega að æfa mig að synda einhvers staðar. Frjálsar á morgun, úfff hef grun um að það verði eitthvað púl...

Ég ætla alltaf að skrifa voða skemmtilegt blogg en einhvern veginn hef ég voða lítið að segja, spurning að hætta þessu bara.

Mæli þá frekar með því að þið kíkið inn á www.123.is/bson og skoða myndirnar úr sjötugs afmælinu hennar ömmu Erlu sem var síðustu helgi, alveg ÓTRÚLEGA gaman, það komu svo margir að og borðuðu góðan mat a la systkinin hans pabbaog dönsuðu við harmonikuspilið hans afa. Það var SVO gaman. Þannig að endilega kíkiði þangað

segi þetta gott í bili, ætla að fara að þvo þvott....alein því Egill nennir því ekki, aldrei neitt gagn í honum greyinu....hehe


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.01.2007 22:56:10 / dagnyerla

22:51

Dagurinn í dag var erfiður...

Ég öskraði á krakka frá klukkan 9:00-14:55 með smá hádegishléi...

Þá efaðist ég um hvað í andskotanum ég væri eiginlega að gera að læra að vera íþróttakennari....

Þetta hlýtur að verða auðveldara með tímanum...

Eins og flest annað...

Skemmtilegur pistill??? Það held ég sko!!!

En brottför í bæinn er á sunnudaginn, smá spenningur að komast aftur í skólarútínuna og hafa eitthvað aðeins meira að gera!!!

Er samt alveg viss um að eftir nokkrar vikur langar mig strax aftur í sveitina;)

Hildur Karen....ekki hætta að blogga!!!!


» 6 hafa sagt sína skoðun

20.01.2007 18:25:22 / dagnyerla

Góður dagur í dag!!

Liverpool 2 - Chelsea 0

 

Ísland 45 - Ástralía 20

Svo er bara spurning hvað gerist á morgun á móti Úkraínu, þeir voru að tapa ansi stórt fyrir Frökkum en maður má ekki vera of góður með sig.

Manchester-Arsenal á morgun, einnig forvitnilegt hvað gerist þar, væri bara til í jafntefli,

kveð að sinni

DEÓ


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.01.2007 14:34:05 / dagnyerla

Bóndadagur!!!

Í dag er bóndadagur, til hamingju allir karlmenn:)

Bóndadagurinn á sér nokkuð sérstaka merkingu hjá fjölskyldunni á Garðarsvegi 18. Við fluttum nefnilega á Seyðisfjörð á bóndadegi árið 1999 þ.e þann 22.janúar. Ef þið reiknið út dæmið þá er ég búin að eiga heima á Seyðisfirði í 8 ár!! Já það er ansi mikið. Finnst eins og það gerðist í gær. Langaði sko ALLS EKKI að flytja á Seyðisfjörð, við vorum nýflutt á Egilsstaði og mér fannst það voða fínt, ég og Erla bjuggum loksins á sama stað og ég ætlaði bara að búa hjá ömmu Dagnýju í 9. og 10. bekk. En auðvitað fékk ég það ekki og ég held að ég tali fyrir alla í fjölskyldunni minni, að við sjáum sko ekki eftir því að hafa flutt hingað. Fyrir minn part þá hef ég kynnst fullt af yndislegu fólki, eignast frábæra vini sem mér þykir svakalega vænt um og liðið alveg frábærlega hérna. Djúpivogur verður alltaf minn staður en ég er fegin að við ákváðum að prófa eitthvað nýtt.

jæja, þetta var svoldið væmið....best að drífa sig í ræktina með Helga Snæ, erum svaka dugleg:) Svo í kvöld ætlum við örugglega að gera smá súkkulaðiköku og hafa ís með í tilefni dagsins, kannski maður kaupi túlípana sem krakkarnir í Huginn verða að selja og geri fínt hérna.

Stelpur, veriði svo góðar við strákana ykkar eða pabba ykkar eða vin ykkar í tilefni dagsins.

bið að heilsa frá Seyðisfirði

DEÓ kveður


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.01.2007 11:32:20 / dagnyerla

Blogga eða???

Er einhver að skoða þessa síðu ennþá??

18 dagur ársins og ég var ennþá með jólaþema hér á þessari svaka síðu;)

Voða fínt að frétta af mér, verknám er æðislegt... allavega mjög fínt. Það er bara gaman að vera íþróttakennari, svei mér þá!! Er búin að vera að kenna ýmsum bekkjum og sund og svoleiðis. Mætti á þriðjudaginn með ullarhúfu, ullarvettlinga og í ullarpeysu og stóð úti í kuldanum að kenna sund frá 9-15!!! Það er rosalegt

Frí í dag og á morgun og svo alla helgina, hélt að ég myndi ekki hafa neitt að gera en ég er víst ekki að standa mig í verkefnunum sem tengjast þessu verknámi og er komin dáldið á eftir, úppps. Þannig að það er heldur betur að standa sig í dag. Svo er ég að spá í að baka í dag...mmmm!!

jæja, þetta var flott blogg:)

Við heyrumst seinna, endilega kvittið fyrir ykkur ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

31.12.2006 19:00:45 / dagnyerla

NÝÁRSKVEÐJA...

...FRÁ DANMÖRKU!!!

Það er svaka stuð hérna í Kollund, væri samt alveg til í að fara á brennu;)

GLEÐILEGT NÝTT ÁR

OG

TAKK FYRIR ÞAÐ GAMLA

kveðja Dagný


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 15:05:39 / dagnyerla

Loksins jólin:)

Vil óska öllum

gleðilegra jóla og

farsældar á komandi ári :)

kveðja, Dagný


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.12.2006 11:06:40 / dagnyerla

Julerejse

Jæja, eftir erfiða fæðingu þá hef ég ákveðið að fara til Danmerkur milli jóla og nýárs til tengdafjölskyldunnar... áætluð brottför er 29.desember og heimkoma 4.janúar!!! Er voða voða spennt en líka kvíðin að vera frá fjölskyldunni yfir áramótin og að þurfa að breyta til um jólin.... úff!!

En einhvern tímann þarf maður víst að fullorðnast og það kallar víst á breytingar!!

Dreymdi að ég hefði eignast bróðir í nótt, hann var líkur Helga. Mamma var þó ekki nálægt og ég þurfti að sjá um hann.Hefur oft dreymt svona draum, að ég eignist bróðir. Hvað ætli það þýði?

3 dagar til jóla, get ekki beðið.

ætla að horfa á simpsons með arnari

bið að heilsa


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.12.2006 23:21:47 / dagnyerla

Jóla hvað??

Ekki segja mér að þetta verður jólaveðrið??

15 gráður og hvasst!!!!

Hvert fór snjórinn og fallega veðrið sem var um daginn?? :(


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13